Lyfjaeftirlitið World Anti-Doping Agency (Wada) vill senda ítalska tenniskappann Jannik Sinner í tveggja ára bann en hann féll tvisvar á lyfjaprófi í mars á þessu ári.
Sinner er í fyrsta sæti á heimslistanum og vann opna bandaríska meistaramótið í byrjun september.
Hann fékk ekki refsingu fyrir að falla í lyfjaprófunum en hann greindist með lítið magn umbrotsefnis af clostebol, tegund stera, á Indian Wells-mótinu í Bandaríkjunum.
Alþjóðleg siðanefnd í tennis, ITIA, komst að þeirri niðurstöðu að ólöglega efnið hafi borist óvart í blóðrás Sinners eftir meðhöndlun sjúkraþjálfara síns sem Sinner rak eftir málið.
Nú vill Wada opna rannsóknina aftur og Sinner gæti fengið allt að tveggja ára bann en lyfjaeftirlitið fer ekki fram á að taka titilinn af Sinner sem hann vann í millitíðinni.