Fyrstu Allir með leikarnir í næsta mánuði

Allir með-leikarnir fara fram þann 9. nóvember næstkomandi.
Allir með-leikarnir fara fram þann 9. nóvember næstkomandi. Ljósmynd/Allir með

Allir með-leikarnir fara fram í fyrsta sinn laugardaginn 9. nóvember næstkomandi í Laugardalshöllinni og fimleikasal Ármanns. Leikarnir eru hluti af verkefninu Allir með, sem miðar að því að fjölga tækifærum fyrir börn með fatlanir í íþróttum.

Í tilkynningu frá Allir með segir að markmiðið með leikunum sé fyrst og fremst að kynna íþróttir fyrir þessum hópi og gera verkefnið um leið sýnilegra í samfélaginu, en aðeins fjögur prósent íslenskra barna með fatlanir stunda íþróttir.

Öll börn með fatlanir eru boðin hjartanlega velkomin á leikana og fjölskyldan er sömuleiðis velkomin með.

„Íþróttaálfurinn mætir á svæðið. Allir þátttakendur fá brúsa merktan leikunum og boðið verður upp á pitsuveislu í hádeginu þar sem einnig verða kynningar á öðrum íþróttagreinum. Deginum líkur svo með dúndrandi diskói,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

Þátttökugjald á Allir með-leikana er 1.500 krónur og fer skráning fram á heimasíðu verkefnisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert