SR á mikilli siglingu

SR-ingar unnu sannfærandi.
SR-ingar unnu sannfærandi. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

SR vann SFH sannfærandi, 7:1, í úrvalsdeild karla í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardalnum í gærkvöldi. 

SR-ingar eru á mikilli siglingu en þeir hafa unnið síðustu fjóra leiki í deildinni og eru með 15 stig eftir sex umferðir. SFH er hins vegar neðst án stiga. 

Sölvi Atlason og Haukur Karvelsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir SR en hin mörkin skoruðu Hákon Magnússon, Helgi Bjarnason og Lokas Dinga. Mark SFH skoraði Ævar Arngrímsson. 

SR heimsækir SA í næstu umferð en SFH heimsækir Fjölni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka