Þrír sigrar í röð hjá Sigurði

Sigurður Kristjánsson, til hægri, og Gunnar Hreiðarsson, til vinstri.
Sigurður Kristjánsson, til hægri, og Gunnar Hreiðarsson, til vinstri.

Sigurður Kristjánsson bar sigur úr býtum í fjórða stigamótinu í snóker á Snóker- og Poolstofunni.

Sigurður hefur unnið síðustu þrjú stigamótin í vetur en hann gat ekki tekið þátt í fyrsta mótinu.

Í úrslitaleiknum mættust Sigurður og Gunnar Hreiðarsson. Sigurður lagði Brynjar Kristjánsson, 3:0, í undanúrslitum og Gunnar hafði betur gegn hinum unga og efnilega Hlyni Stefánssyni, 3:1.

Í fyrsta rammanum komst Sigurður yfir, 51:11, en Gunnar svaraði fyrir sig með því að hreinsa borðið með stuði upp á 46 og komst því yfir, 1:0. Sigurður vann hins vegar næstu þrjá ramma og átti meðal annars stuð upp á 95.

Næsta stigamót í snóker fer fram helgina 30. nóvember og 1. desember.

Gunnar leikur listir sínar á meðan Sigurður fylgist með.
Gunnar leikur listir sínar á meðan Sigurður fylgist með.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert