Lindsey Vonn, ein sigursælasta skíðakona Bandaríkjanna, hefur tekið skíðin af hillunni fimm árum eftir að hún sagði skilið við íþróttina.
Vonn, sem er fertug, fann sig knúna til að hætta árið 2019 vegna þrálátra hnémeiðsla sem ollu því að hún gat til að mynda ekki rétt fyllilega úr fætinum í áratug.
Hún gekkst undir liðskiptaaðgerð á hnénu í apríl síðastliðnum og hefur bataferlið gengið það vel að Vonn hefur brátt æfingar með bandaríska skíðalandsliðinu í Colorado-ríki.
Þegar hún hætti var Vonn sigursælasta skíðakona heims en landa hennar Mikaela Shiffrin á þann heiður í dag.
Í samtali við New York Times kvaðst Vonn stefna að því að byrja að keppa aftur á heimsbikarmótum áður en langt um líður.
Spurð hvort hún sæi fyrir sér að keppa á Vetrarólympíuleikunum í Cortina á Ítalíu árið 2026 sagðist Vonn ekki vita hvort það væri mögulegt en vildi ekki útiloka neitt.