Haukar tryggðu sér í sextán liða úrslitunum í Evrópubikar kvenna í handbolta eftir 17:16- sigur gegn Dalmatinka í Ploce í Króatíu í kvöld.
Fyrri viðureign liðanna var í gær og þá endaði leikurinn einnig með eins marks sigri Hauka, 24:23.
Dalmatinka var 10:9 yfir í hálfleik í dag og leikurinn var í járnum frá byrjun. Þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum voru Haukar marki yfir, 16:15, en Dalmatinka jafnaði metin í 16:16 þegar mínúta var eftir. Rut Arnfjörð Jónsdóttir skoraði sigurmarkið undir lokin og tryggði Haukum 17:16 sigur.
Sonja Lind Sigsteinsdóttir og Rut voru markahæstar fyrir Hauka með fjögur mörk. Ragnheiður Ragnarsdóttir og Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoruðu þrjú, Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði tvö og Sara Marie Odden skoraði eitt.
Valur og Haukar leika því bæði í sextán liða úrslitum Evrópubikarsins en Valur sló í gær út sænska liðið Kristianstad.