Landsliðskona lést aðeins 26 ára

Sophie Hediger er látin aðeins 26 ára.
Sophie Hediger er látin aðeins 26 ára. AFP/Ben Stansall

Snjóbrettakonan Sophie Hediger, sem var lansliðskona Sviss, lést í snjóflóði aðeins 26 ára gömul. 

Svissneska skíðasambandið greindi frá tíðindunum í yfirlýsingu í dag. Atvikið gerðist í fjallabænum Arosa í Sviss í gær. 

Hediger keppti meðal annars fyrir hönd Sviss á Vetrarólympíuleikunum í Kína árið 2022. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert