Höskuldur og Thelma best í Kópavogi

Thelma Aðalsteinsdóttir og Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks, sem tók við …
Thelma Aðalsteinsdóttir og Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks, sem tók við verðlaununum fyrir hönd Höskuldar. Ljósmynd/Kópavogsbær

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.

Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8. janúar. Fengu þau að launum farandbikar, eignarbikar og 300 þúsund króna ávísun í viðurkenningarskyni.

Það voru þau Elísabet Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar og Sverrir Kári Karlsson formaður íþróttaráðs sem afhentu verðlaunin en Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks tók við verðlaunum fyrir hönd Höskuldar Gunnlaugssonar.

Höskuldur og Thelma voru valin úr hópi 47 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu íþróttaráðs eftir tilnefningar frá íþróttafélögunum í bænum. Í kjörinu eru það atkvæði íþróttaráðs sem gilda 60% en íbúakosning 40%.

Umfjöllun bæjarins um Höskuld:

Höskuldur er fyrirliði meistaraflokks Breiðabliks í knattspyrnu karla og átti stóran þátt í að félagið varð Íslandsmeistari á árinu. Hann spilaði alla leikina í mótinu, alls 27 leiki og skoraði 9 mörk. Í lok tímabilsins var hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins af leikmönnum Bestu deildar karla ásamt því að vera valinn í lið ársins í Bestu deildinni.

Höskuldur hefur verið lykilmaður og frábær leiðtogi í Breiðabliksliðinu undanfarin ár bæði innan vallar sem utan. Hann er virkilega góð fyrirmynd fyrir yngri iðkendur félagsins, bæði hvað varðar ástundun en ekki síður hvernig hann kemur fram fyrir hönd félagsins.

Umfjöllun bæjarins um Thelmu:

Thelma Aðalsteinsdóttir átti frábært fimleikaár 2024. Hún varð Íslandsmeistari í fjölþraut í þriðja sinn, Íslandsmeistari á stökki, slá og gólfi. Hún varð einnig bikarmeistari með liði sínu í Gerplu. Hún varð Norðurlandameistari í liðakeppni og Norðurlandameistari á gólfi. Thelma varð Norður-Evrópumeistari á öllum áhöldum og hlaut annað sæti í fjölþraut.

Er þetta sögulegur árangur og besti árangur keppanda frá Íslandi. Thelma keppti á Evrópumótinu á Ítalíu þar sem hún endaði í 41. sæti og var hársbreidd frá því að tryggja sig inn á ólympíuleikana í París. Á Evrópumótinu framkvæmdi hún æfingu á tvíslá sem þar var skírð eftir henni Aðalsteinsdóttir. Í lok árs var Thelma svo valin fimleikakona ársins hjá Fimleikasambandi Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert