Seinagangurinn með ólíkindum

Ásmundur Einar Daðason Mennta- og barnamálaráðherra, Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur …
Ásmundur Einar Daðason Mennta- og barnamálaráðherra, Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur og Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ i taka fyrstu skóflustunguna að breyttum Laugardalsvelli. mbl.is/Eyþór

Í febrúar og mars verða fimm mikilvægir knattspyrnuleikir íslenskra liða leiknir erlendis. Fimm heimaleikir Íslands.

Víkingar mæta Panathinaikos í umspili Sambandsdeildarinnar 13. febrúar, væntanlega í nágrenni Kaupmannahafnar.

Stúlknalandsliðið leikur í mars til úrslita um sæti í lokakeppni EM og er gestgjafi í sínum riðli. En vegna aðstöðuleysis á Íslandi verða heimaleikirnir þrír leiknir á Spáni.

Karlalandsliðið leikur heimaleik sinn gegn Kósóvó, úrslitaleik um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar, í Murcia á Spáni 23. mars.

Þjóðarhöll fyrir innanhússíþróttir er enn á undirbúningsstigi og vonast er eftir því að hún verði risin árið 2029.

Leikvangur fyrir alþjóðlega keppni í frjálsíþróttum er enn í lausu lofti.

Þessi seinagangur í byggingu íþróttamannvirkja hjá þjóð sem vill alls staðar vera í fremstu röð hefur verið með ólíkindum. Á meðan spretta upp „græn gímöld“ á örskotsstundu án þess að nokkur taki eftir því.

Bakvörðinn má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert