Þórsarar fá risanafn úr píluheiminum

Russ Bray mætir á SjallyPally á Akureyri.
Russ Bray mætir á SjallyPally á Akureyri. Ljósmynd/Skjáskot

Píludeild Þórs á Akureyri hefur tilkynnt að Russ Bray, goðsögn í píluheiminum, muni sjá um að kynna stigin á Akureyri Open sem fer fram í Sjallanum í byrjun apríl.

Bray tilkynnti stigin á heimsmeistaramótinu í Alexandra Palace, Ally Pally, í Lundúnum um langt árabil og er oftast einfaldlega þekktur sem „Röddin.“

Hann lét af þeim störfum eftir þarsíðasta heimsmeistaramót í janúar á síðasta ári en snýr nú aftur og það á Íslandi.

„Hann fékk nóg af AllyPally og vildi ólmur mæta á SjallyPally. Hlökkum til að fá þennan mikla meistara á Akureyri Open og þenja raddböndin á sviðinu!“ sagði meðal annars í tilkynningu frá píludeild Þórs.

Í tilkynningunni fylgdi með skemmtilegt myndband af Bray að senda kveðju vegna komu sinnar, sem má sjá hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert