Fimm íslenskir keppendur á HM

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir fer á HM í alpagreinum.
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir fer á HM í alpagreinum. AFP

Heimsmeistaramótið í alpagreinum fer fram í Saalbach í Austurríki dagana 4. -16. febrúar. Ísland sendir fimm keppendur til leiks.

Keppendurnir fimm eru:

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir úr Ármanni tekur þátt í risasvigi, bruni, stórsvigi og svigi,
Gauti Guðmundsson úr KR tekur þátt í stórsvigi og svigi,
Jón Erik Sigurðsson úr Fram tekur þátt í stórsvigi og svigi,
Sturla Snær Snorrason úr Ármanni tekur þátt í svigi,
Tobias Hansen úr SKA tekur þátt í stórsvigi og svigi.

Bjarni Þór Hauksson og Matthías Kristinsson afþökkuðu sætin sín sem og Elín Elmarsdóttir Van Pelt. Þau þrjú ætla að einbeita sér að heimsmeistaramóti unglinga sem fram fer í Tarvisio á Ítalíu 25. febrúar - 6. mars.

Hólmfríður Dóra verður sú fyrsta af íslensku keppendunum til að mæta til Saalbach en hún tekur þátt í brunæfingum 4. og 5. febrúar og keppir svo í risasvigi 6. febrúar og bruni 7. febrúar.

Karlarnir hefja hinsvegar keppni 13. febrúar þegar þeir taka þátt í undankeppni í stórsvigi.

Dagskrá íslensku keppendanna:

4. febrúar - Brunæfing kvenna
5. febrúar - Brunæfing kvenna
6. febrúar - Risasvig kvenna
7. febrúar - Brun kvenna
12. febrúar - Undankeppni stórsvigs kvenna
13. febrúar - Stórsvig kvenna og undankeppni stórsvig karla
14. febrúar - Stórsvig karla og undankeppni svig kvenna
15. febrúar - Svig kvenna og undankeppni svig karla
16. febrúar - Svig karla

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert