Tveir íslenskir skíðamenn lentu á verðlaunapalli í svigi á alþjóðlegu skíðamóti á Ítalíu í morgunn. Sturla Snær Snorrason úr Ármanni lenti í fyrsta sæti og Jón Erik Sigurðsson lenti í þriðja sæti.
Sturla Snær tók skíðin af hillunni í haust eftir langa pásu og þeir taka báðir þátt á heimsmeistaramótinu í alpagreinum sem fer fram í Saalbach í Austurríki dagana 4. -16. febrúar.
Sturla Snær Snorrason tekur þátt í svigi og Jón Erik Sigurðsson tekur þátt í stórsvigi og svigi.