Tiger sakaður um hugverkastuld

Tiger Woods
Tiger Woods Ljósmynd/AFP

Tiger Woods hefur verið ásakaður um hugverkastuld vegna einkennismerkis fatalínu sinnar, Sun Day Red. Annað fyrirtæki, Tigeraire, er sagt eiga merkið.

Umsókn Woods um einkaleyfi á merkinu hefur verið stöðvuð en merkið þykir keimlíkt því sem Tigeraire hefur einkaleyfi á.

„Aðgerðir Sun Day Red og Tiger Woods, hunsa skrásett vörumerki Tigaraire og einkenni ásamt því að brjóta alríkislög um hugverk. Umsókn SDR ætti því að vera hafnað“, segir í athugasemd Tigeraire.

Sun Day Red heitir því nafni vegna þess að Woods klæddist gjarnan rauðu þegar hann keppti á sunnudögum.

Sun Day Red merkið
Sun Day Red merkið Ljósmynd/Linkedin
Samanburður á merkjunum tveimur. Tigeraire til vinstri og Sun Day …
Samanburður á merkjunum tveimur. Tigeraire til vinstri og Sun Day Red til hægri. U.S. Patent and Trademark Office
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert