Grátlegt fyrir Íslendinginn

Guðmundur Ágúst var afar nálægt því að komast áfram.
Guðmundur Ágúst var afar nálægt því að komast áfram. Ljósmynd/European Tour

Guðmundur Ágúst Kristjánsson var einu höggi frá því að komast áfram á lokastig úrtökumóta fyrir Evrópumótaröðina í golfi um helgina. 

Íslenski kylfingurinn hafnaði í 26. sæti á móti á 2. stigi úrtökumótanna í Huelva á Spáni um helgina en 25 efstu kylfingarnir fóru áfram. Hann lék fjóra hringi á 12 höggum undir pari.

Haraldur Franklín Magnús lék einnig á mótinu og hafnaði í 37. sæti á níu höggum undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert