„Þetta er svo heimskulegt“

Scottie Scheffler.
Scottie Scheffler. AFP/Ross Kinnaird

Bandaríski kylfingurinn Scottie Scheffler kveðst ekki ætla að láta óheppileg meiðsli sem hann varð fyrir á jóladag koma í veg fyrir að hann taki þátt á fleiri mótum.

Scheffler skarst illa á lófa hægri handar þegar hann handlék brotið vínglas. Þurfti Scheffler að gangast undir skurðaðgerð vegna þess og mun í vikunni taka þátt í sínu fyrsta golfmóti á árinu, AT&T Pebble Beach Pro-Am-mótinu.

„Ég hef engar áhyggjur. Þetta er dæmi um atvik þar sem ég var reiður út í sjálfan mig strax eftir að það átti sér stað. Ég hugsaði með mér: „Almáttugur, þetta er svo heimskulegt.“

En maður hugsar ekki út í þetta þegar augnablikið á sér stað. Þetta var í alvöru ekki hræðilegt en ég vissi að ég hafði hlaupið á mig því höndin hreyfðist ekki mikið og þegar ég hreyfði hana meiddi ég mig ansi mikið,“ sagði Scheffler á fréttamannafundi í dag.

Missti hann af tveimur mótum vegna meiðslanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert