Norðurírski kylfingurinn Rory McIlroy fór holu í höggi í annað sinn á ferli sínum þegar hann tók þátt í Pebble Beach Pro-Am í Bandaríkjunum, sem er hluti af PGA-mótaröðinni.
McIlroy hitti kúluna óaðfinnanlega á 15. holu, sem er par þrjú hola, fyrsta hrings á mótinu í Pebble Beach. Höggið var 109 metrar og snerti kúlan ekki grasflötinn; fór beint ofan í holuna.
Síðast fór hann holu í höggi á Travelers-mótinu árið 2023 og var það þar til í dag eina skiptið sem McIlroy hafði náð að fara holu í höggi á PGA-mótaröðinni.