Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, fagnaði fyrsta titlinum með Wisla Plock í Póllandi í gær.
Wisla vann þá erkifjendurna í Kielce, 27:23, í hinum árlega leik um Meistarabikar Póllands en liðin tvö hafa verið í sérflokki í landinu undanfarin ár og Wisla hafði betur í einvígi þeirra um meistaratitilinn síðasta vetur.
Viktor tók ekki þátt í leiknum en fagnaði með félögum sínum í leikslok.