Viggó og Andri drjúgir í stórsigri

Viggó Kristjánsson.
Viggó Kristjánsson. AFP/Ina Fassbender

Landsliðsmennirnir Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson léku vel þegar að Leipzig vann Stuttgart, 33:24, í 1. umferð þýska handboltans í Leipzig í dag. 

Viggó skoraði fimm mörk og gaf tvær stoðsendingar en Andri Már skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar. 

Rúnar Sigtryggsson, sem er faðir Andra, er þjálfari Leipzig-liðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert