Sex íslensk mörk og sæti í átta liða

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir lék vel.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir lék vel. Ljósmynd/Jon Forberg

Íslendingaliðið Kristianstad tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum sænska bikarsins í handbolta með sannfærandi sigri á Eskilstuna, 34:25, á heimavelli. Kristianstad vann fyrri leikinn 36:25 og einvígið samanlagt 70:50.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átti flottan leik fyrir Kristianstad og skoraði fimm mörk. Berta Rut Harðardóttir gerði eitt mark.

Skara er úr leik eftir tap á útivelli gegn Önnered, 26:23. Skara vann fyrri leikinn 25:23 en tapaði einvíginu með minnsta mun, 49:48.

Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Skara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert