Valur og Afturelding mætast í hörkuleik í 2. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik á Hlíðarenda í kvöld.
Valsmenn gerðu jafntefli við ÍBV í fyrstu umferð á meðan Afturelding tapaði fyrir Haukum.
Valsmenn urðu bikarmeistarar í vor en Afturelding vorið 2023.
Þá mætast einnig ÍBV og Stjarnan í Vestmannaeyjum.
Stjörnumenn höfðu betur gegn HK, 29:27, í fyrstu umferð en Kópavogsbúar sigruðu Íslandsmeistara FH í gær.