Með stórleik í Portúgal

Þorsteinn Leó Gunnarsson lék afar vel.
Þorsteinn Leó Gunnarsson lék afar vel. mbl.is/Óttar Geirsson

Porto vann stórsigur, 36:21, á útivelli gegn Povoa í fjórðu umferð efstu deildar portúgalska handboltans í kvöld.

Þorsteinn Leó Gunnarsson fer vel af stað með Porto og hann skoraði sjö mörk fyrir sitt lið.

Porto er með fullt hús stiga eftir leikina fjóra. Porto er með Val í riðli í Evrópudeildinni í vetur. Liðin mætast á Hlíðarenda 15. október og í Porto 26. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert