Sterkur sigur Stjörnunnar á Val

Starri Friðriksson skoraði sex mörk.
Starri Friðriksson skoraði sex mörk. Árni Sæberg

Stjarnan vann sinn annan sigur á leiktíðinni í úrvalsdeild karla í handbolta í kvöld er liðið sigraði Val, 28:25, á heimavelli. Stjarnan er með fjögur stig eftir þrjá leiki en Valur aðeins eitt.

Stjarnan byrjaði betur og var með fimm marka forskot þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður, 10:5. Sex mörkum munaði í hálfleik, 21:15.

Valur minnkaði muninn í tvö mörk, 24:22, þegar seinni hálfleikur var hálfnaður, og svo aftur fimm mínútum fyrir leikslok, 27.25.

Aðeins eitt mark var skorað á lokakaflanum og Stjörnumenn fögnuðu í leikslok.

Mörk Stjörnunnar: Jóhannes Bjørgvin 6, Jóel Bernburg 6, Starri Friðriksson 6, Benedikt Marinó Herdísarson 5, Adam Thorstensen 1, Sveinn Andri Sveinsson 1, Tandri Már Konráðsson 1, Pétur Árni Hauksson 1, Hans Jörgen Ólafsson 1.

Varin skot: Adam Thorstensen 14.

Mörk Vals: Viktor Sigurðsson 6, Ísak Gústafsson 6, Úlfar Páll Monsi Þórðarson 4, Alexander Peterson 2,  Andri Finnsson 2, Björgvin Páll Gústavsson 1, Miodrag Corsovic 1, Magnús Óli Magnússon 1, Allan Norðberg 1, Kristófer Máni Jónasson 1.

Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 11.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert