Stórsigur Hauka í grannaslagnum

Inga Dís Jóhannsdóttir skýtur að marki Stjörnunnar í kvöld.
Inga Dís Jóhannsdóttir skýtur að marki Stjörnunnar í kvöld. mbl.is/Anton Brink

Haukar unnu afar sannfærandi sigur á Stjörnunni, 29:16, í þriðju umferð úrvalsdeildar kvenna í handbolta á Ásvöllum í kvöld.

Í stöðunni 3:3 skoruðu Haukar fimm mörk í röð. Skiptust liðin á að skora næstu mínútur og munaði fjórum mörkum í hálfleik, 14:10.

Haukar skoruðu sjö fyrstu mörk seinni hálfleiks og var ekki að spyrja að leikslokum eftir það.

Mörk Hauka: Elín Klara Þorkelsdóttir 6, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 5, Sara Odden 4, Ragnheiður Ragnarsdóttir 4, Inga Dís Jóhannsdóttir 2, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 2, Rut Jónsdóttir 1, Þóra Hrafnkelsdóttir 1, Alexandra Líf Arnarsdóttir 1, Sara Katrín Gunnarsdóttir 1, Berglind Benediktsdóttir 1.

Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 12, Elísa Helga Sigurðardóttir 2.

Mörk Stjörnunnar: Embla Steindórsdóttir 5, Anna Lára Davíðsdóttir 5, Eva Björk Davíðsdóttir 3, Vigdís Arna Hjartardóttir 2, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 1.

Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 10.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert