Jóhanna í miklum ham

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði 7 mörk í kvöld.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði 7 mörk í kvöld. Ljósmynd/Jon Forberg

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, landsliðskona í handknattleik, lék mikið að sér kveða í kvöld þegar lið hennar, Kristianstad, vann stórsigur á Skövde í sænsku úrvalsdeildinni, 33:22.

Jóhanna skoraði sjö mörk í leiknum og var markahæst í liði Kristianstad. Bertha Rut Harðardóttir náði ekki að skora fyrir liðið í leiknum.

 Kristianstad er þá komið með tvö stig eftir tvo fyrstu leiki sína á tímabilinu en liðið tapaði naumlega í fyrstu umferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert