Víkingur lagði Þór frá Akureyri að velli í hörkuspennandi leik í Safamýri í kvöld, 32:31, þegar liðin mættust þar í kvöld í fyrsta leik tímabilsins í 1. deild karla í handknattleik.
Leikurinn var jafn og tvísýn fram á lokamínúturnar en Ásgeir Snær Vignisson tryggði Víkingum sigurinn þegar hann kom þeim í 32:30 þegar átta sekúndur voru til leiksloka. Mark Odds Gretarssonar um leið og leiktíminn rann út breytti engu.
Sigurður Páll Matthíasson skoraði 8 mörk fyrir Víking, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 7 og Ásgeir Snær skoraði 6.
Oddur lét mikið að sér kveða í fyrsta leiknum eftir langan feril í atvinnumennsku og skoraði 11 mörk fyrir Þór. Næstur kom Brynjar Hólm Grétarsson með 5 mörk.