Lilja Ágústsdóttir verður frá keppni í fjórar til fimm vikur en hún meiddist í leik Íslands og Tékklands á dögunum. Lilja verður ekki með Val í Evrópubikarkeppninni gegn Zalgiris Kaunas.
Handbolti.is hefur eftir Ágústi Jóhannssyni, þjálfara Vals og föður Lilju, að hún hafi tognað á ökkla þegar stigið var fyrir hana þegar hún fór inn úr horninu gegn Tékkum.
Valur mætir Fram í næsta leik á Íslandsmótinu á miðvikudagskvöldiðog í kjölfarið ferðast liðið til Litáen og mætir Zalgiris á laugardag og sunnudag.