Blomberg-Lippe tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum þýska bikarsins í handbolta með heimasigri á Solingen, 30:23, í 16-liða úrslitunum.
Andrea Jacobsen átti flottan leik fyrir Blomberg-Lippe og skoraði fjögur mörk. Hún kom til liðsins frá Silkeborg í Danmörku fyrir tímabilið.
Eyjakonan Díana Dögg Magnúsdóttir komst ekki á blað að þessu sinni en hún gekk einnig í raðir félagsins eftir síðustu leiktíð, frá Zwickau í Þýskalandi.