Þórir tjáði sig um arftakann

Þórir Hergeirsson er ánægður með ráðninguna á Ole Gustav Gjekstad.
Þórir Hergeirsson er ánægður með ráðninguna á Ole Gustav Gjekstad. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórir Hergeirsson, fráfarandi þjálfari norska kvennalandsliðsins í handknattleik, fagnar ráðningu Ole Gustav Gjekstad, sem tekur við starfinu af honum í lok þessa árs.

Þórir þjálfar Noreg í síðasta sinn á EM 2024 í nóvember og desember og freistar þess þar að leiða liðið til sjötta Evrópumeistaratitilsins undir sinni stjórn.

„Þetta er mjög góður valkostur. Hann er rétti maðurinn,“ sagði Þórir ákveðinn í samtali við VG um Gjekstad, sem er 56 ára Norðmaður.

„Reynsla og ferðalag Ole innan handboltans og atvinnulífsins sér til þess að hann er klárlega hæfur í þetta starf.

Þetta er mjög góður kostur fyrir leikmennina, liðið og Handknattleikssamband Noregs. Ég er ánægður með að hann hafi ákveðið að taka þessari áskorun,“ bætti Þórir við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert