Alpla Hard vann öruggan sigur á HSG Graz í efstu deild Austurríkis í handbolta á heimavelli sínum í kvöld, 38:27.
Tumi Steinn Rúnarsson lék afar vel með Alpla Hard og skoraði átta mörk. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið.
Alpla Hard er í öðru sæti deildarinnar með átta stig eftir sex leiki.