Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við japanska markvörðinn Aki Ueshima um að leika með kvennaliði félagsins á tímabilinu.
Ueshima er 23 ára gömul landsliðskona Japans sem lék með til að mynda með landsliðinu í undankeppni Ólympíuleikanna í vor.
Hún hefur á ferlinum leikið í heimalandinu og í Hollandi með liði Dalfsen.