Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, landsliðskona í handbolta, átti góðan leik með Kristianstad þegar liðið sigraði Westfriesland, 32:23, á heimavelli í fyrri leik liðanna í 1. umferð Evrópubikar kvenna í dag.
Jóhanna skoraði fimm mörk í leiknum og liðið er nú með níu marka forskot fyrir seinni leik liðanna sem er næstkomandi laugardag á útivelli.
Kristianstad var 12:16 undir í hálfleik en kom vel inn í seinni hálfleik og Jóhanna skoraði öll sín mörk þá. Berta Rut Harðardóttir náði ekki að skora fyrir liðið í leiknum.