Handboltamaðurinn Bjarki Már Elísson var markahæstur fyrir Veszprém í, 39:25, stórsigri liðsins gegn Éger í efstu deild Ungverjalands í dag.
Bjarki Már skoraði átta mörk úr níu skotum og var markahæstur í leiknum.
Veszprém er í öðru sæti í deildinni með fullt hús stiga eftir fjóra leiki og á tvo leiki til góða á topplið Pick Szeged sem er með 12 stig eftir sex leiki.