Elías Már Halldórsson og leikmenn hans í norska úrvalsdeildarfélaginu Fredrikstad tryggðu sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildar kvenna í handknattleik eftir 28:20-sigur á Amicitia Zürich frá Sviss í dag.
Þetta var annar stórsigur Fredrikstad á Amicitia Zürich á tveimur dögum en í gær fór leikurinn 33:21 fyrir Fredrikstad.
Einvígið var í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar og Fredrikstad sleppir við aðra umferð og fer beint í riðlakeppnina.
Elías hefur þjálfað liðið frá 2021 en fyrir það þjálfaði hann karlalið HK.