Haukar unnu afar sannfærandi þrettán marka sigur á KTSV Eupen í Belgíu í dag, 30:17, í seinni viðureign liðanna í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Haukar unnu því einvígið samanlagt með 35 marka mun, 68:33, en fyrri leikur liðanna fór 38:16, Haukum í vil.
Birta Lind Jóhannsdóttir var atkvæðamest Haukakvenna í dag en hún skoraði átta mörk úr átta skotum og þá gerði Sara Katrín Gunnarsdóttir fimm mörk.
Elísa Helga Sigurðardóttir átti góðan leik í marki Hauka en hún varði fimmtán skot og var með 47% markvörslu.
Dregið verður í næstu umferð þriðjudaginn 15. október nk.