Valur mætir Kristianstad – Haukar til Króatíu

Valur og Haukar taka bæði þátt í 32-liða úrslitum Evrópubikarsins.
Valur og Haukar taka bæði þátt í 32-liða úrslitum Evrópubikarsins. mbl.is/Hákon

Valur mætir sænska liðinu Kristianstad í 32-liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handknattleik í næsta mánuði. Haukar mæta þá króatíska liðinu Dalmatinka Ploce.

Fyrri leikirnir fara fram 9. og 10. nóvember og síðari leikirnir 16. og 17. nóvember.

Valur spilar fyrri leikinn sinn á heimavelli sínum að Hlíðarenda og þann síðari í Svíþjóð. Haukar byrja í Ploce í Króatíu og spila svo síðari leikinn á Ásvöllum.

Með Kristianstad leikur íslenska landsliðskonan Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og Berta Rut Harðardóttir.

Drátturinn í heild sinni:

Valur – Kristianstad
Dalmatinka Ploce - Haukar
Istogu - Hazena Kynzvart
H71 – PAOK
Conservas Orbe Zendal Porrino - Bursa Buyuksehir
Ionias – Jagodina
IUVENTA Michalovce – Grude
Galychanka Lviv – Qarabag
Üsküdar - Madeira
Málaga Costa del Sol – Sao Pedro do Sul
Zeleznicar - Caja Rural Aula Valladolid
Urbis Gniezno – Erice
Jomi Salerno – Slavia Prag
Görele - Atzgersdorf
Colégio Gaia – Cair Skopje
Dudelange - Unirek

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert