Ein bestu tilþrifin voru íslensk

Magnús Óli Magnússon skoraði glæsilegt mark í gær.
Magnús Óli Magnússon skoraði glæsilegt mark í gær. mbl.is/Óttar

Ein bestu tilþrif 2. umferðar Evrópudeildar karla í handbolta voru íslensk en samfélagsmiðladeild handknattleikssambands Evrópu birti í dag nokkur af bestu tilþrifum umferðarinnar.

Á meðal þeirra var glæsilegt mark sem Magnús Óli Magnússon skoraði fyrir Val gegn Porto í Kaplakrika í gærkvöldi. Magnús fór þá illa með vörn Porto og skrúfaði síðan boltanum glæsilega í netið.

Tilþrifin má sjá hér fyrir neðan, en flétta þarf einu sinni til að sjá mark Magnúsar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert