Liðsstyrkur í Kópavoginn

Aron Dagur Pálsson í treyju HK.
Aron Dagur Pálsson í treyju HK. Ljósmynd/HK

Handknattleiksmaðurinn Aron Dagur Pálsson er genginn til liðs við HK og semur út tímabilið. 

Aron kemur til HK frá Val en þar hefur hann leikið undanfarin tvö ár. Hann hefur einnig spilað með Elverum í Noregi, Gulf og Alingsås í Svíþjóð og Gróttu og Stjörnunni hérlendis. 

Aron mun klæðast treyju númer 13 en hann á leiki að baki með yngri landsliðum Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert