Sannfærandi Framarar gegn ÍBV

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín skoraði átta mörk.
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín skoraði átta mörk. Kristinn Magnússon

Fram vann öruggan níu marka sigur, 29:20, er liðið mætti ÍBV í úrvalsdeild kvenna í handbolta á heimavelli sínum í Úlfarsárdal í kvöld.

Fram er í öðru sæti með níu stig, einu stigi á eftir Val sem á leik til góða. ÍBV er í fjórða sæti með sex stig.

Framarar náðu undirtökunum í fyrri hálfleik og var staðan í leikhléi 15:9. ÍBV komst aldrei á skrið í seinni hálfleik og Fram sigldi sannfærandi sigri í höfn.

Mörk Fram: Alfa Brá Hagalín 8, Þórey Rósa Stefánsdóttir 5, Karen Knútsdóttir 4, Lena Margrét Valdimarsdóttir 4, Hildur Lilja Jónsdóttir 3, Íris Anna Gísladóttir 3, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 1, Kristrún Steinþórsdóttir 1, Steinunn Björnsdóttir 1, Erna Guðlaug Gunnarsdóttir 1.

Varin skot: Darija Zecevic 20, Ethel Gyða Bjarnasen 2.

Mörk ÍBV: Birna María Unnarsdóttir 4, Birna Berg Haraldsdóttir 4, Sunna Jónsdóttir 4, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Britney Cots 2, Margrét Björg Castillo 2, Dagbjört Ýr Ólafsdóttir 1, Birna Dís Sigurðardóttir 1.

Varin skot: Marta Wawrzykowska 16.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert