Stórleikur unga markvarðarins

Ísak Steinsson markvörður, til vinstri,varði fjórtán skot.
Ísak Steinsson markvörður, til vinstri,varði fjórtán skot. Ljósmynd/HSÍ

Ísak Steinsson átti stórleik í markinu hjá Drammen í heimasigri á Sandnes, 38:23, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. 

Drammen er í öðru sæti norsku deildarinnar með tíu stig eftir sjö leiki. 

Ísak varði 14 skot og var með 38% markvörslu. 

Þá tapaði Íslendingalið Arendal fyrir Runar, 37:27, á útivelli. 

Dagur Gautason skoraði 4 mörk fyrir Arendal en Árni Bergur Sigurbergsson var ekki með liðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert