Lét til sín taka í góðum sigri

Stiven Tobar Valencia í leik með Benfica.
Stiven Tobar Valencia í leik með Benfica. Ljósmynd/Benfica

Stiven Tobar Valencia átti góðan leik fyrir Benfica þegar liðið hafði betur á heimavelli gegn Avanca, 32:28, í efstu deild portúgalska handboltans í kvöld.

Stiven skoraði fjögur mörk og var næstmarkahæstur í liði Benfica.

Liðið er í þriðja sæti deildarinnar með 23 stig eftir níu leiki.

Í efstu tveimur sætunum eru Sporting og Porto með 24 stig og eiga auk þess leik til góða á Benfica.

Orri Freyr Þorkelsson leikur með Sporting og Þorsteinn Leó Gunnarsson með Porto.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka