Aron kveður uppeldisfélagið: „Bless í bili“

Aron Pálmarsson með Íslandsmeistarabikarinn á lofti.
Aron Pálmarsson með Íslandsmeistarabikarinn á lofti. mbl.is/Arnþór Birkisson

Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson er þakklátur fyrir tíma sinn í Hafnarfirði en þetta kom fram í fréttatilkynningu sem hann og handknattleiksdeild FH sendu frá sér.

Aron, sem er 34 ára gamall, er genginn til liðs við ungverska stórliðið Veszprém á nýjan leik og skrifaði hann undir tveggja ára samning í Ungverjalandi.

Landsliðsfyrirliðinn sneri heim til Íslands á síðasta ári eftir fjórtán ár í atvinnumennsku og samdi við FH en hann varð Íslands- og deildarmeistari með liðinu síðasta vor.

Eitt aðalmarkmið í huga

Þegar ég gekk til liðs við FH í fyrra hafði ég eitt aðalmarkmið í huga – að verða Íslandsmeistari. Við náðum því markmiði saman, og ég er ólýsanlega stoltur af því afreki,“ sagði Aron.

Þrátt fyrir að ég sé að yfirgefa félagið núna mun ég alltaf líta á Kaplakrika sem mitt annað heimili. Ég vil þakka leikmönnum, þjálfurum, stjórninni, sjálfboðaliðum og öllum stuðningsmönnum FH fyrir ykkar ómældu vinnu og stuðning.

Við erum öll ríkjandi Íslandsmeistarar og FH mun halda áfram að vera það stórveldi í íslenskum handbolta sem það hefur alltaf verið,“ sagði Aron en hann endaði fréttatilkynninguna á orðunum „bless í bili“.

Kveðja Arons til FH:

Kæru FH-ingar,

Eftir ógleymanlegt ár með félaginu hef ég tekið þá ákvörðun að ganga til liðs við Veszprém í Ungverjalandi og mun ekki taka frekari þátt með FH á þessu tímabili.

Þegar ég gekk til liðs við FH í fyrra hafði ég eitt aðalmarkmið í huga – að verða Íslandsmeistari. Við náðum því markmiði saman, og ég er ólýsanlega stoltur af því afreki.

Ferðalagið hefur verið fullt af áskorunum, sigrum og ógleymanlegum minningum. Ég vil þakka ykkur öllum fyrir ómetanlegan stuðning. Þetta er árangur sem við náðum saman, og það skiptir mig miklu máli.

Þrátt fyrir að ég sé að yfirgefa félagið núna mun ég alltaf líta á Kaplakrika sem mitt annað heimili. Ég vil þakka leikmönnum, þjálfurum, stjórninni, sjálfboðaliðum og öllum stuðningsmönnum FH fyrir ykkar ómældu vinnu og stuðning. Við erum öll ríkjandi Íslandsmeistarar og FH mun halda áfram að vera það stórveldi í íslenskum handbolta sem það hefur alltaf verið.

Ég er líka sérstaklega þakklátur fjölskyldu minni og mínum allra nánustu fyrir að styðja mig heilshugar í þessari ákvörðun. Án þeirra væri þetta ekki mögulegt.

Ég á enn óklárað verkefni hjá Veszprém, og ég er spenntur fyrir að fá tækifæri til að klára það. Ég fæ gæsahúð við tilhugsunina um að spila aftur fyrir framan stuðningsmenn Veszprém en minningarnar úr Kaplakrika síðan í vor munu líka ylja mér í vetur.

Bless í bili - og áfram FH!

Aron Pálmarsson
FH-ingur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert