Kölluð inn í íslenska hópinn

Katrín Tinna Jensdóttir er komin í íslenska landsliðið.
Katrín Tinna Jensdóttir er komin í íslenska landsliðið. Kristinn Magnússon

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, hefur kallað línukonuna Katrínu Tinnu Jensdóttur úr ÍR í hópinn fyrir komandi vináttulandsleiki við Pólland.

Ísland mætir Póllandi í tveimur leikjum, sá fyrri fer fram á heimavelli Fram í Úlfarsárdal á föstudag klukkan 20.15 og sá seinni á Selfossi á laugardag klukkan 16.

Katrín Tinna hefur leikið 19 landsleiki og skoraði í þeim 19 mörk. Hún var með íslenska liðinu á HM á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert