Níu íslensk mörk í Þýskalandi

Elvar Örn Jónsson skoraði mark fyrir Melsungen.
Elvar Örn Jónsson skoraði mark fyrir Melsungen. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Melsungen heldur góðu gengi sínu áfram í efstu deild þýska karlahandboltans en liðið vann Leipzig, 28:27, á útivelli í kvöld. 

Melsungen er í efsta sæti deildarinnar með 14 stig eftir fyrstu átta leikina. Leipzig er í tíunda sæti með átta stig. 

Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Melsungen en Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki. 

Hjá Leipzig skoraði Viggó Kristjánsson sex mörk en Andri Már Rúnarsson skoraði tvö mörk. Rúnar Sigtryggson, faðir Andra, er þjálfari Leipzig-liðsins. 

Hamburg og Hannover-Burgdorf gerðu jafntefli, 32:32. 

Heiðar Felixsson er aðstoðarþjálfari Hannover en liðið er í öðru sæti deildarinnar með 13 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka