Landsliðsmaðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson sýndi glæsileg tilþrif í marki pólska liðsins Wisla Plock er það mátti þola tap gegn Fredericia í Meistaradeild Evrópu í handbolta í gærkvöldi.
Viktor varði níu skot í leiknum, mörg þeirra glæsilega, en það dugði ekki til gegn lærisveinum Guðmundar Guðmundssonar.
Samfélagsmiðladeild Meistaradeildarinnar vekur athygli á glæsilegum tilþrifum Viktors, sem sjá má hér fyrir neðan. Fleiri tilþrif Viktors má sjá með því að fletta á næstu síður færslunnar.