Skara hafði betur gegn Kristianstad, 29:24, á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.
Aldís Ásta Heimisdóttir átti fínan leik fyrir Skara og skoraði fjögur mörk.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, sem lék áður með Skara, gerði sex fyrir Kristianstad. Berta Rut Harðardóttir komst ekki á blað.
Skara er í sjöunda sæti með fimm stig og Kristianstad í sætinu fyrir neðan með fjögur.