Blomberg-Lippe sigraði Bensheim-Auerbach, 28:24, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.
Díana Dögg Magnúsdóttir gerði fjögur mörk fyrir Blomberg-Lippe og Andrea Jacobsen bætti við tveimur mörkum.
Liðið er í fjórða sæti deildarinnar með átta stig eftir sex leiki.