Dagur drjúgur í Noregi

Dagur Gautason í leik með KA á sínum tíma.
Dagur Gautason í leik með KA á sínum tíma. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Dagur Gautason var stórkostlegur fyrir Arendal í 33:33-jafntefli liðsins gegn Nærbø í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Dagur skoraði átta mörk fyrir Arendal úr átta skotum. Liðsfélagi hans Árni Bergur Sigurbergsson náði ekki að koma sér á blað.

Arendal situr í sjöunda sæti deildarinnar með átta stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka