Landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson átti stórglæsilega línusendingu í leik Leipzig gegn Flensburg í efstu deild þýska handboltans um síðustu helgi.
Viggó átti stórleik en hann skoraði átta mörk og gaf fimm stoðsendingar. Þrátt fyrir það allt tapaði Leipzig, 35:29.
Ein af fimm stoðsendingum Viggós var alveg stórglæsileg, og hálf óskiljanleg. Þá laumaði hann boltanum einhvern veginn á Luka Rogan línumann sem skoraði.
Myndskeið af línusendingunni má sjá hér.