Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, hefur tilkynnt að fresta þurfi leik HK og ÍBV sem fara átti fram í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í Kórnum í kvöld.
Ástæðan fyrir því er slæmt veður en erfitt er fyrir leikmenn ÍBV að komast frá Vestmannaeyjum vegna veðurskilyrða.
Leiknum hefur verið frestað um sólarhring en nýr leiktími er miðvikudagurinn 6. nóvember klukkan 18.