Stórkostlegt skot landsliðsmannsins Óðins Þórs Ríkharðssonar á æfingu íslenska landsliðsins í handbolta hefur vakið mikla athygli.
Hornamaðurinn gerði sér lítið fyrir og skoraði fram hjá Viktori Gísla Hallgrímssyni með ótrúlegum snúningi aftur fyrir bak.
Samfélagsmiðladeild evrópska handknattleikssambandsins birti tilþrifin á Instagram-síðu sinni og hafa rúmlega 60.000 manns líkað við myndbandið, sem sjá má hér fyrir neðan.